Sigmar Vilhjálmsson athafnarmaður er ósáttur við baráttuaðferðir Eflingar sem nú berst fyrir hærri kjörum þeirra lægst launuðu í samfélaginu. DV greinir frá gagnrýni Sigmars og bent á að Efling fari fram á hærri launahækkanir en Lífskjarasamningarnir frá því síðasta vor.
Sigmar segir á Twitter:
Verkfall er jafn úrelt fyrirkomulag eins og opinberar grýtingar sem refsing við lögbroti. Hærri laun skila ekki meira í vasa launþega, eingöngu hærri skatttekjum til ríkisins og hærra vöruverði. Millistéttin og lítil og meðalstór fyrirtæki eru látin borga brúsann. Skamm Efling!
Valgerður Arnardóttir veganaktívisti og starfsmaður Eflingar svarar Sigmari fullum hálsi og segir:
„Breaking news! Maður sem rekur fyrirtæki á láglaunastefnu er á móti verkföllum og stéttarfélagi starfsfólks síns!!“