Sigmar ekki sáttur við grín Gísla Marteins: „Grín á sér alltaf stað og stund“

Veitingamaðurinn og afurðatalsmaðurinn Sigmar Vilhjálmsson er ekki sáttur við grín Gísla Marteins Baldurssonar, fjölmiðlamanns og Eurovisionlýsanda, um grátmyndbandið fræga.

Sigmar ræddi Kristínu Sif Björgvinsdóttur og Jón Axel Axelsson í þættinum Ísland vaknar á K100 í morgun. Jón Axel sagði að Sigmar hefði verið heldur súr eftir að skot Gísli Marteins á Sigmar þegar Gísli Marteinn kynnti rússneska lagið í undankeppninni á þriðjudag. Gísli Marteinn hafði áður gert grín að myndbandinu í þætti sínum síðustu helgi.

Grátmyndband Sigmars svokallaða, sem um ræðir, birti Sigmar á Instagram í tengslum við viðtal Sölva Tryggvasonar við lögmann sinn vegna ásakana um ofbeldi. Kristín sagði Sigmari að hann þyrfti að taka ábyrgð á því sem hann setji á samfélagsmiðla. „Þú þarft ekkert að skammast þín fyrir að gráta með Sölva. Þú bara „ownar“ það, og það má alveg gera pínu grín að þér.“

Sigmar viðurkenndi það og sagði: „Þetta myndband hefur snúist algjörlega upp í andhverfu sína víða. Númer eitt, ég setti inn grátvídeó sem ég er farinn að sjá svolítið eftir. Ég setti það inn í tengslum við þegar hann er að segjast taka eigið líf og pabbi hans vilji ekki missa annan son. Og það er áður en einhverjar ákærur eru lagðar fram á hendur Sölva.“

Sigmar hafnar því að hafa verið taka afstöðu með Sölva, slíkt sé galið. Sigmar segir að hann hafi ekki þótt það neitt mál þegar Gísli Marteinn gerði grín að myndbandinu í þætti sínum, en hafi ofboðið þegar Gísli Marteinn kom með athugasemdir sínar í Eurovision.

„Grín á sér alltaf stað og stund. Þegar þú ert farinn að segja sama brandarann tvisvar þá fer maður að velta fyrir sér: Er eitthvað þarna? Ég veit auðvitað að Gísli Marteinn hefur haft horn í síðu minni því ég hef ekki deilt skoðunum hans í hjólreiðamálum, gatnamálum, skipulagsmálum Reykjavíkurborgar og að nagladekk eigi bara að vera tekin af út af dagsetningu en ekki veðurfari. Við höfum tekist á á Twitter þannig að ég hugsa með mér: Getur verið að þetta sé að koma af vondum stað? Grín getur komið af góðum stað en það getur líka komið af vondum stað.“