Fjölmiðlamaðurinn Sigmar Guðmundsson verður í öðru sæti á lista Viðreisnar í Suðvesturkjördæmi, kraganum svokallaða, í kosningunum í haust. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður flokksins, er í fyrsta sæti.
Sigmar segir í samtali við Fréttablaðið að hann sé búinn að segja upp á RÚV. „Ég sagði upp í gær og um leið hætt allri dagskrárgerð,“ segir hann.
Hann segir skoðanir sínar fara vel saman við stefnu Viðreisnar. „Hugsjónir mínar eru nokkuð samhljóma Viðreisn og hafa alltaf verið. Ég lít á mig sem mjög frjálslyndan mann og hef lengi verið þeirrar skoðunar að það þurfi að stokka upp í gjaldmiðlamálum, ég held að krónan sé mikill dragbítur á alls konar framfarir bæði hjá fyrirtækjum og einstaklingum. Svo er mikið frjálslyndi í störfum Viðreisnar og þeirra kjörnu fulltrúm sem heilla mig mikið.“
Sigmar telur að hann geti miðlað reynslu sinni um réttindi blaðamanna í stjórnmálunum. „Ef það er eitthvað sem stendur hjarta okkar nærri þá er það tjáningarfrelsið og það að blaðamenn geti ýtt undir umræðu með því að starfa í alvöru umhverfi. Ég held að atburðir síðustu vikna sýni að það er býsna mikilvægt.“