Dregið hefur úr vatnsflaumnum á Siglufirði, en starfsmenn á vegum bæjarins hafa fylgst með ástandinu þar í nótt Ljíst er að yfirgripsmikið hreinsunarstarf r framundan í bænum..
Þetta sagði Ámundi Gunnarsson, slökkviliðsstjóri þegar fréttastofa RÚV náði sambandi við hann í morgun, en fjöldi manna kom saman um klukkan átta í morgun til að hefja hreinsun, en mikill aur og eðja er á götum bæjarins. Það mun koma í ljós með morgninum hversu mikið tjónið hefur orðið, en hætt er við að það hlaupi á hundruðum milljóna króna.
Þetta eru veersu flóð á þessum slóðum í meira en aldarfjórðung, en menn minnast aurskriðanna sem féllu í Ólafsfirði árið 1988 og fylltu h´æus og garða af eðju sem marrga daga tók að hreinsa á burt..
Veðrið ætti að haldast skaplegt næstu daga, en gert er ráað fyrir norðlægum áttum og súld um norðaustanvert landið sem ekki ætti að ná inn á Tröllaskagann. Annars verður skýjað með köflum, hægari vindur og rofar til eftir hádegi og lægir víða í kvöld, en rigning verður suðaustanlands. Hæg vestlæg átt verður á morgun, skýjað með köflum og yfirleitt þurrt.