Sigló: hér leggjast allir á eitt

Íbúar Siglufjarðar hafa staðið saman sem einn til að bregðast við úrhellinu. Talið er að eignatjón í bænum vegna rigninganna geti numið tugum ef ekki hundrað milljónum króna.
 
Eitthvert versta vatnsveður sem gengið hefur yfir norðanverðan Tröllaskaga gerði í gær og í dag með þeim afleiðingum að hlíðar yfir byggð gáfu sig og streymdu í eðju sinni fram sjó.
 
Íbúar á Siglufirði, þar sem ástandið var hvað verst, trúðu varla eigin augun þegar leið á daginn. 
 

Hálfdán Sveinsson er hótelstjóri á Siglufirði, en hótelið hans stendur við götuna sem fór hvað verst út úr rigningunum. Hann segir í samtali við fréttavef RÚV að snemma í dag hafi vatn byrjað að streyma inn á hótelið: \"

Til að gera langa sögu stutta þá bara fór að flæða inn í hús hérna sem aldrei hefur flætt inn í. Flæddi bara inn um hurðina á hótelinu hjá mér til dæmis,“ segir 

hann: \"Það eru náttúrlega innréttingar sem voru fastar. Eins og á barnum, það var fet djúpt vatn á barnum. Það á dálítið eftir að koma í ljós hvað er ónýtt.“

 

 

Hálfdán segir að með kvöldinu hafi heldur dregið úr rigningunni: \"Það koma nú alltaf svolítið miklar gusur. En eftir að það náðist að hemja Hvanneyraána þá hefur þetta ekki verið neitt. Það er í raun Hvanneyraáin sem var tjónvaldurinn. Hún rann hérna yfir alla eyrina og suður Lækjargötuna og myndaði hérna risastórt stöðuvatn,“ segir hann, en bætir við. \"Það voru náttúrlega einhver stórvirk vinnutæki, gröfur, og alls konar til að koma henni í réttan farveg aftur,“ segir hann.

Hálfdán segir að allir sem vettlingi geta valdið hafi tekið þátt í því að bregðast við rigningunni, sem hann líkir við náttúruhamfarir: \"Já allir bara hérna, nágrannar, það hafa allir staðið saman sem einn, þannig gengur þetta náttúrlega alltaf best,“ segir hann.