Í dag hefst Alþjóðleg barnakvikmyndahátíð í Reykjavík. Hátíðin, sem fer nú fram í sjötta sinn, verður haldin í Bíó Paradís frá 4. – 14. apríl. Fjöldi sígildra kvikmynda fyrir börn og unglinga verða sýndar, þar á meðal hinar íslensku Benjamín Dúfa, sem verður sýnd í fyrsta sinn í fullum stafrænum gæðum, og Skýjahöllin.
Benjamín Dúfa er opnunarmynd hátíðarinnar og verður sýnd klukkan 17:30 í dag. Aðrar íslenskar kvikmyndir sem verða sýndar á hátíðinni eru Regína, teiknimyndirnar Litla lirfan ljóta og Anna og Skapsveiflurnar og heimildamyndin Hagamús – með lífið í lúkunum. Hin sænska Ronja Ræningjadóttir verður einnig sýnd.
Þá verða sígildar erlendar kvikmyndir fyrir börn og unglinga sýndar, þeirra á meðal Matilda, The NeverEnding Story, Ghostbusters, My Neighbor Totoro og The Dark Crystal.
Í lýsingu á hátíðinni segir að hlutverk hennar sé að bjóða börnum, unglingum og fjölskyldum þeirra aðgang að áhugaverðum og vönduðum barna- og unglingakvikmyndum víðs vegar að úr heiminum, sem annars eru ekki teknar til sýninga á Íslandi. Hátíðin eykur fjölbreytni í kvikmyndaflóru fyrir börn, eflir kvikmyndalæsi barna- og unglinga og er tækifæri fyrir alla fjölskylduna að koma á metnaðarfulla viðburði og njóta dagskrár í hæsta gæðaflokki.
Verndari hátíðarinnar er Vigdís Finnbogadóttir. Á heimasíðu Bíó Paradísar er hægt að nálgast nánari upplýsingar um allar myndirnar, sýningartíma og frekari upplýsingar um hátíðina.