Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur skipar efsta sæti framboðslista Miðflokksins í Hafnarfirði fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í Hafnarfirði 26. maí n.k. Í öðru sæti er Bjarney Grendal Jóhannesdóttir grunnskólakennari.
Almennur félagsfundur Miðflokksins í Hafnarfirði hefur samþykkti tillögu uppstillinganefndar
„Við göngum því óbundin til kosninganna í vor en erum tilbúin að starfa með öllum sem vilja vinna með okkur að skynsamlegum málum sem bæta hag bæjarbúa,“ segir Sigurður meðal annars í yfirlýsingu.
Efstu fimm sætin eru þannig skipuð:
1 Sigurður Þ. Ragnarsson Náttúruvísindamaður
2 Bjarney Grendal Jóhannesdóttir Grunnskólakennari
3 Jónas Henning Fjárfestir
4 Gísli Sveinbergsson Málarameistari
5 Arnhildur Ásdís Kolbeins Viðskiptafræðingur