Sigurður Helgi Hlöðversson var gestur Sigmundar Ernis í viðtalsþættinum Mannamál á Hringbraut í nýliðinni viku, en þar fer einn allra vinsælasti útvarpsmaður þjóðarinnar og þúsundþjalasmiður að auki. Óhætt er að segja að viðtalið hafi vakið athygli, en nú er hægt að skoða það á vef stöðvarinnar.
Viðtalið spannar allt tilfinningasviðið frá kæruleysislegum hlátri og gölnum sögum til dýpstu sorgar og erfiðleika við að takast á við erfiðasta áfall lífsins, en líf Sigga hefur fráleitt verið dans á rósum alla tíð.
Í byrjun viðtalsins rifja Sigmundur og Sigurður upp útvarpsferil Sigga Hlö, eins og hann er jafnan kallaður, en segja má að hann hafi byrjað í Seljaskóla þar sem Siggi var fenginn til að þeyta skífur sem fragtmaðurinn faðir hans hafði útvegað honum eftir túra um heimsins höf. Þar með var teningunum kastað, strákurinn sem átti allar plöturnar varð eiginlega vinsæll strax um fermingu sakir allra platnanna sem hann hafði eignast - og svo fór að hann byrjaði á næturvaktinni á Rás 2 og hafði ekki verið þar nema í nokkrar vikur að hann bjallaði í forráðamenn Stjörnunnar, sem þá atti kappi við Bylgjuna og kvaðst vera það reyndur í útvarpi að þeir myndu strax sjá eftir því að ráða hann ekki. Eftirleikinn þekkir þjóðin, þar á meðal sjónvarpsferil Sigga sem hófst á þeim óviðjafnanlega þætti Með hausverk um helgar sem fór í meira lagi fyrir brjóstið á heldra fólki í landinu, en efni þáttarins leitaði oft og einatt í grensuna.
Það hafa sem fyrr segir skipst á skin og skúrir í lífi Sigga, en hann missti föður sinn í hræðilegu sjóslysi í norðurhöfum á jóladag, 1986 en þar króknaði hann um borð í björgunarbát á meðan björgunar var beðið. Siggi var þá 18 ára, tók ábyrgð á móður sinni og yngri systur í sorginni og gat sjálfur ekki unnið í sínu sorgarferli fyrr en mörgum árum síðar þegar konan hans, sem hann byrjaði með ungur, hafði tekið eftir því að hann forðaðist öll átök og deilur og vék sér jafnan undan því að rífast við fólk. \"Ég gat ekki grátið svo árum skipti,\" segir Siggi í þættinum sem sýnir einlæga hlið á þessum vinsæla skemmtikrafti sem nýtur óhemju vinsælda um land allt, ekki síst meðal miðaldra kvenna á kennderíi í sumarhúsum úti í sveit.
Mannamál eru endursýnd um helgina og sjáanleg sem fyrr segir inni á vef stöðvarinnar.