Siggi hakkari fékk 3ja ára tukthús

Sigurður Ingi Þórðarson, sem þekktur er undir nafninu Siggi hakkari, hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn níu drengjum. Vísir segir frá.
 
Þetta er meðal umfangsmestu kynferðisbrotamála síðari tíma að því er fram kemur í frétt á ruv.is um málið í morgun.
 

Sigurður var ákærður fyrir tugi brota. Hann kom fyrir Héraðsdóm Reykjaness í lok síðasta mánaðar og játaði á sig öll ákæruatriðin. Hann játar að hafa tælt fimm pilta á aldrinum 15 og 16 ára hátt í 60 sinnum með margvíslegum blekkingum. Í frétt Vísis segir að Sigurður sé einnig dæmdur til að greiða piltunum alls 8,6 milljónir í skaðabætur.

Þetta er í annað sinn sem Sigurður er dæmdur fyrir kynferðisbrot. Í nóvember lauk hann afplánun átta mánaða fangelsis fyrir að tæla 17 ára pilt með blekkingum.

Í gæsluvarðhaldsúrskurði yfir Sigurði við rannsókn málsins kom fram að hann væri grunaður um að hafa brotið gegn ellefu piltum á unglingsaldri, sumum undir lögaldri og einhverjum yngri en fimmtán ára. Tvö af þessum ellefu málum leiddu ekki til ákæru. Sigurður mun sjálfur hafa verið 18 til 21 árs þegar atvikin áttu sér stað.

Í gæsluvarðhaldsúrskurðinum kemur fram að geðlæknir sem gerði rannsókn á Sigurði telji hann sakhæfan en siðblindan.