Sigurður Ingi Þórðarson, sem er þekktur sem Siggi hakkari hefur breytt nafni sínu í Þjóðskrá. Heitir hann nú aðeins Sigurður Þórðarson.
Siggi hakkari var dæmdur í þriggja ára fangelsi árið 2015 fyrir brot gegn níu piltum sem hann braut á árunum 2011-2013. Þá var honum gert að greiða þeim alls 8,6 milljónir króna í miskabætur. Alls var hann dæmdur fyrir tæplega sjötíu brot gegn piltunum, sem allir voru á unglingsárum þegar brotin áttu sér stað, þar af fjörutíu gegn einum þeirra.
Sigurður er einnig þekktur fyrir að hafa starfað fyrir Wikileaks. Hann byrjaði að hakka tölvur í kringum tólf ára aldur og starfaði síðar með Julian Assange og félögum í Wikileaks. Hann komst í heimspressuna þegar samvinna hans og Assange lauk með því að sá síðarnefndi sakaði hann um að hafa dregið að sér fé sem átti að renna til samtakanna.