Siggeir undrar sig á gosverði í Landspítalanum: „Af hverju þarf að græða á sjúklingum?“

Ljósmyndaranum Siggeiri M. Hafsteinssyni þykir nóg um verðlagið á Landspítalanum. Í færslu á Twitter-síðu sinni segir hann frá því að á meðan hann var þar í heimsókn hafi hann keypt tvær gosflöskur úr sjálfsala og hafi þær kostað 740 kr.

„Það kostar ekkert svona mikið að reka þetta drasl,“ skrifar Siggeir. „Af hverju þarf að græða á sjúklingunum?“

„Það er bara beisik þjónustu að fólk geti fengið sér að drekka eða eitthvað að narta í hérna ef það þarf á annað borð að vera hérna,“ heldur hann áfram í Twitter-þræðinum. „Það kemur engin hingað bara til að gera vel við sig. Þetta er eins og með almenningssamgöngur, þær eru þjónusta við fólkið en ekki gróðaleið.“