Kynlífsfræðingurinn vinsæli Sigga Dögg segir að kona nákomin sér hafa orðið fyrir líkamsárás af hálfu „mjög þekktra einstaklinga í okkar samfélagi“. Samkvæmt heimildum Hringbrautar er mjög þekktur áhrifavaldur í hópnum og er töluverður titringur innan áhrifavaldaheimsins með þetta mál.
Sigga Dögg greinir frá þessu á Twitter. Þar segir hún:
Ok svo skilaboðin hætti. Svona standa málin. Ég var vakin um miðja nótt fyrir nokkrum vikum til að sækja systur mína sem varð fyrir líkamsárás af hendur mjög þekktra einstaklinga í okkar samfélagi. Ekki bara leiðindi. Árás, líkamleg og andleg.
— Sigga Dögg (@KjaftadumKynlif) May 31, 2021
Þá bætir hún við að það séu vitni:
„Þetta var ekki misskilningur eða túlkun eða huglæg upplifun. Það þurfti að kalla til lögreglu.“
Áhrifavaldurinn Edda Falak, sem tekið skal fram að kom hvergi nærri árásinni, spyr svo:
„Afhverju þarf fólk alltaf frekari útskýringu á ofbeldinu til þess að taka því alvarlega?“