Sigga Kling: „Ég varð svo sorg­mædd að ég var búin að safna saman pillum og át þær allar“

Spákonan Sigga Kling segist einu sinni hafa upplifað ástarsorg, þegar hún var átján ára gömul og að í kjölfarið hafi hún reynt að fyrirfara sér.

Sigga opnaði sig um málið í einlægu viðtali í viðtalsliðnum Hitasætið í þættinum Veislan á Fm957 í gær.

Sigga segist hafa haldið á fyrsta ástin væri allt, hún hafi upplifað gríðarlega ástarsorg. „Ég varð svo sorgmædd að ég var búin að safna saman pillum og át þær allar.“

Í örvæntingu hafi hún verið búin að skrifa skilaboð til allra nánustu aðstandenda en hún hafi svo skriðið út úr húsinu og fundist á stigagangi og í kjölfarið hafi hún verið send á bráðamóttöku.

Að sögn Siggu má ekki vanmeta þær sterku tilfinningar sem fólk getur fundið í ástarsorg, sérstaklega ekki í kringum fyrstu ástina. Sjálf segist Sigga ekki muna eftir verri tilfinningum en einmitt þá, þrátt fyrir að hafa lent í ýmsu.

Hægt er að lesa og hlusta á viðtalið við Siggu í heild sinni hér.

Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg og er fólk með sjálfsvígshugsanir minnt á Píeta samtökin.

Síminn hjá Pieta-samtökunum er jafnframt opinn allan sólarhringinn og er 552-2218 og vefsíðan pieta.is.