Sigríður Beinteinsdóttir, eða Sigga Beinteins eins og hún er gjarnan kölluð rifjar upp Eurovision-ævintýri sín í 25 ára afmælisriti Viðskiptablaðsins. Sigga Beinteins hefur tekið nokkrum sinnum þátt í keppninni og var hennar besti árangur fjórða sæti þegar hún söng lagið Eitt lag enn ásamt Grétari Örvarssyni.
Sigga Beinteins fór svo árið 2006 sem bakraddasöngkona með Sylvíu nótt sem túlkuð var af Ágústu Evu.
„Það var alveg mögnuð ferð, alveg hrikalega skemmtileg, en á köflum var hún svolítið sérstök, því þessi leikaraskapur fór svo gjörsamlega úr böndunum. Ég vil meina að ef þau hefðu leikið atriðið aðeins öðruvísi þá hefðu þau farið áfram upp úr riðlinum, því ég hafði tekið eftir því í þessar tvær vikur sem ég var úti í Kýpur fyrir keppnina að lagið var töluvert spilað í útvarpinu þar. En þegar þau byrja með þennan leikaraskap sinn á æfingunum úti, þá snerist þetta upp í andhverfu sína og þau fá alla á móti sér.“
Í þættinum Mannamál á Hringbraut greindi Sigga frá því að eftir að Sylvía Nótt blótaði og sendi fingurinn á einni æfingunni í Grikklandi hefði allt orðið vitlaust. Sagði Sigga að hún og aðrar bakraddasöngkonur hefðu alltaf sagt að þæri væru frá Svíþjóð þegar þær brugðu sér niður í miðbæ á meðan keppni stóð.
Í viðtalinu í Viðskiptablaðinu segir Sigga ólíklegt sé að hún taki aftur þátt í keppninni.
„Ég verð nú að viðurkenna að ég hélt nú ekki með Hatara fyrst, en þegar ég sá atriðið þeirra á úrslitakvöldinu snerist mér hugur, því þá sá maður hvað var mikil markaðsmaskína á bak við þetta allt hjá þeim og hvað atriðið var glæsilegt. Þeir áttu þetta kvöld, en svo veit maður ekki hvað þeir gera úti, það verður örugglega hávaði og læti í kringum þá líkt og hjá Sylvíu Nótt.“