Sigga beinteins og maría björk hjá lóu

Það voru léttar og skemmtilegar umræður í þættinum Lóa og Lífið sem sýndur var á Hringbraut í gærkvöld, en þar fékk Þórdís Lóa til sín tónlistakonurnar Siggu Beinteins og Maríu Björk til að ræða um vináttuna og tengslin, en þær hafa starfað saman í yfir 20 ár með söngskóla og Söngvaborg.

Í þessum þáttum Lóu fær hún til sín pör af öllu tagi, jafnt hjón, bræður, systur, vinnufélaga og vini sem deila með áhorfendum hvernig best er að efla tengslin og taugarnar í sönnum vinskap.

Í þætti gærkvöldsins, sem sjá má hér á vef stöðvarinnar, sögðu þær stöllur frá samstarfinu og gáfu áhorfendum innsýn í Eurovision-heiminn, en hér eru á ferð ástsælar tónlistakonur sem hafa verið heimilisvinir landans í gegnum vinsælt barnaefni undanfarna tvo áratugi.

Þættir Lóu eru frumsýndir öll þriðjudagskvöld, sýndir að nýju í dag og endursýndir um helgar.