Sigfús fagnar 20 ára edrú afmæli: „lífið hefur sett fyrir mig mörg verkefni, sum æðisleg og önnur mjög erfið“

„Á þrjóskunni hætti ég að að drekka og nota fíkniefni en ég vildi ekki vinna prógrammið þó að ég mætti á fundina. Ég var eins og hungraður maður sem kom með steik úr búðinni en gerði ekkert nema stara á hana. En á endanum beit ég, fór að gera upp fortíðina og hreinsa til í lífinu. Loksins fór ég að skilja að heimurinn skuldaði mér ekkert en ég skuldaði heiminum.“

Þetta segir Sigfús Sigurðsson, fisksali og fyrrverandi atvinnumaður í handbolta. Sigfús var lengi í landsliðinu og einn okkar besti línumaður. Hann hefur ýmsa fjöruna sopið en fagnar núna 20 árum án áfengis. Í helgarviðtali við Fréttablaðið opnar hann sig um sínar sárustu stundir og svo sigra. Sigfús segir að þegar hann var atvinnumaður á Spáni hafði hann mikið á milli handanna og áfengið var ódýrt. Hann glímdi þá þegar við mikla áfengis og fíkniefnaneyslu. Þetta var árið 1998.

 „Samningnum mínum var rift í lok desember og ég sendur heim. 11. janúar var ég kominn í meðferð. Eftir meðferðina spilaði ég tvo eða þrjá leiki en svo ekkert í tvö ár. Ég var brotinn líkamlega og andlega og þurfti tíma til að vinna í að halda mér edrú. Það var ekki fyrr en ég fór í prógrammið, kom hausnum á mér í lag og fór að geta hjálpað öðrum að ég gat farið að æfa aftur.“

Árið 2013 var fjallað um það í DV að Sigfús hefði selt silfurmedalíuna sem hann fékk fyrir glæstan árangur landsliðsins í Peking. Opnaði Sigfús sig um að hann hefði átt í miklum fjárhagserfiðleikum. Þá stofnaði hann fyrirtæki sem fór á hausinn.

 „Þegar maður kemur sér í svona hluti sjálfur þýðir ekki að vera grenja neitt,“ segir Sigfús um fjárhagsvandræðin. „Lífið leggur ekki meira á mig en ég þoli.“ Sigfús segir á öðrum stað:

„Vegna medalíumálsins voru fáir sem vildu ráða mig og ég fann fyrir miklum fordómum. En þá kynntist ég Fiskikónginum, Kristjáni Berg. Hann bauð mér í atvinnuviðtal og við ræddum saman í næstum þrjá klukkutíma. Ég lagði spilin á borðið og daginn eftir hóf ég störf hjá honum. Við græddum báðir á þessu því ég fékk vinnu og hann auglýsingu út á mig. Hann aðstoðaði mig mikið og ég er afar þakklátur fyrir það.“

Sigfús var í fjögur ár hjá Fiskikónginum en ákvað þá að hefja eigin rekstur. Opnaði hann Fiskbúð Fúsa í nóvember á síðasta ári. Sigfús segir hlæjandi:

 „Ég mæti snemma og er flottur og hreinn á morgnana. Um hádegið er ég farinn að lykta eins og gamall sokkur“.

Sigfús kveðst nú vera hamingjusamur og mun hamingjusamari en þegar hann fór síðast í stórt viðtal árið 2013.

 „Lífið hefur sett fyrir mig mörg verkefni, sum æðisleg og skemmtileg en önnur mjög erfið. Það er aðeins spurning um hvernig maður tekst á við þau. Hvað á maður að gera ef eitthvað erfitt kemur upp? Leggjast í kör og fara að grenja? Gefast upp? Ég kann það ekki og nenni því ekki. Ef ég fæ erfitt verkefni upp í hendurnar tekst ég á við það og ef ég ræð ekki við það leita ég eftir aðstoð. Blessunarlega á ég stóra og samheldna fjölskyldu og góða vini sem ég get reitt mig á og hef gert. Ég er ákaflega þakklátur fyrir þetta fólk, því án þess væri ég kominn undir græna torfu.“

Hér má lesa viðtalið í heild sinni.