Í fréttatilkynningu frá Sjúkratryggingum kemur fram að umsóknum um meðferð erlendis vegna langs biðtíma hér á landi hefur fjölgað verulega á síðustu árum.
Þar kemur fram að umsóknum um brýna meðferð erlendis (þ.e. mjög flókin meðferð sem ekki er hægt að veita hérlendis vegna skorts á sérhæfðri þekkingu eða tækjabúnaði) fjölgað um tæplega 50%, umsóknum um meðferð erlendis vegna langs biðtíma um tæplega 270% og umsóknir um lyfjaskírteini hafa tvöfaldast á tímabilinu.
Veruleg fjölgun er í nær öllum flokkum erinda og umsókna til Sjúkratrygginga.
Þegar allt er dregið saman kemur í ljós að Sjúkratryggingar þurfi að afgreiða um 150 umsóknir á hverjum virkum degi.