Sif tætir agnesi og kirkjuna í sig: „þjóð­kirkjan gæti lært ýmis­legt af satanistum“

„Íslenska þjóð­kirkjan virðist ekki eiga upp á pall­borðið um þessar mundir. Sam­kvæmt nýjum tölum sem Þjóð­skrá birti í vikunni um skráningar í trú- og lífs­skoðunar­fé­lög fækkaði þeim sem skráðir eru í þjóð­kirkjuna um 1.501 á milli ára. Tæp­lega 133.000 manns standa nú fyrir utan þjóð­kirkjuna, eða 36,5 prósent lands­manna, en árið 1992 voru 92,2 prósent lands­manna skráð í þjóð­kirkjuna.“

Þetta segir einn vinsælasti og beittasti pistlahöfundur þjóðarinnar, rithöfundurinn Sif Sigmarsdóttir í helgarblaði Fréttablaðsins. Þar gagnrýnir Sif biskup Íslands, Agnesi M. Sigurðardóttir og Þjóðkirkjuna harðlega. Sif rifjar upp þegar Agnes í aðdraganda jóla vildi meina að hríðfallandi traust til kirkjunnar mætti rekja til siðrofs í landinu. Segir Sif að betur hefði farið á því að Agnes hefði litið í eigin barm en að reyna skella flóttanum frá kirkjunni á að kristnifræðikennslu hefði verið hætt í grunnskólum. Sif segir á öðrum stað:

„Ef þjóð­kirkjan væri ekki eins og for­sögu­legur kýklópi, einglyrningur með svo tak­markaða sýn að hann sér ekki lengra nefi sínu, kæmi hún ef til vill auga á að gott leynist á ó­væntustu stöðum.“

Þá fjallar Sig um heimildarmyndina Hail Satan sem vakti athygli á Sundance-kvik­mynda­há­tíðinni á síðasta ári en myndin fjallar um söfnuð djöfla­dýrk­enda í Banda­ríkjunum. Sif segir:

„Hópurinn til­biður ekki djöfulinn í eigin­legum skilningi heldur er myrkra­höfðinginn notaður sem mynd­líking til að tákna þá sem standa utan­garðs, eru öðru­vísi, hugsa sjálf­stætt og passa ekki inn í mót sam­fé­lagsins.

Musteri Satans boðar gagn­rýna hugsun, for­vitni, efa­hyggju og skoðana­skipti. Söfnuðurinn sinnir góðgerðastörfum og berst fyrir jafn­rétti, kven­frelsi, rétti til fóstur­eyðinga, réttindum sam­kyn­hneigðra, trú­frelsi og að­skilnaði ríkis og kirkju. Yfir­lýst stefna satanistanna er „að hvetja til ör­lætis og sam­kenndar“.“

Sif bendir á að Musteri Satans starfi eftir sjö boðorðum sem standi hinum tíu fornu boðorðum sem Móses rölti með niður af hinu helga fjalli eftir að hafa átt þar spjall við Guð og hafa síðan þá verið trúarlegur og siðferðislegur áttaviti hinna kristnu. Boðorð Satanistanna eru eftirfarandi:

„– Maður ætti alltaf að gera sitt besta til að sýna öðrum vin­semd og sam­kennd eftir því sem skyn­semi býður.
– Trúar­brögð ættu að að­lagast vísinda­legum stað­reyndum. Þess ber að gæta að vísinda­legur sann­leikur sé aldrei af bakaður í þeim til­gangi að hann falli betur að trúar­skoðunum.
– Fólk er skeikult. Geri maður mis­tök ber manni að reyna að bæta úr þeim eftir bestu getu og bæta fyrir þann skaða sem kann að hafa orðið.“

Sif segir síðan að lokum:

„Þjóð­kirkjan sem af­skrifar 36,5 prósent lands­manna sem sið­lausa gæti lært ýmis­legt af satanistum. Til dæmis að til­einka sér sjálf það um­burðar­lyndi sem hún boðar.“

Hér má svo lesa pistilinn í heild sinni.