Sif Sigmars segir systkinin í Grindavík hafa efnast fyrir sögulega tilviljun

Sif Sigmarsdóttir segir það sögulega tilviljun að systkinin í Grindavík hafi efnast á sölu sinni á útgerðarfélaginu Vísir til Síldarvinnslunnar. Þetta kemur fram í pistli hennar sem birtist í Fréttablaðinu í dag sem ber nafnið "Mannkostir undir meðallagi".

Þannig segir hún að það sé ekki til marks um blóð svita og tár að systkinin efnist á þessari sölu heldur sé um hreina tilviljun að ræða að þetta fólk njóti góðs af þeim peningum sem til verða í viðskiptunum.

Þá ber hún saman söluna við Grosvenor-fjölskylduna í Englandi sem efnaðist á því einu að forfaðir þeirra eignaðist land sem síðar meir varð að Lundúnum. Eða eins og Sif skrifar:

„Grosvenor-fjölskyldan á sér langa sögu af svimandi auðsöfnun þrátt fyrir mannkosti undir meðallagi. Fjölskyldunafnið sem og auðæfin má rekja aftur um þúsund ár. Forfaðir og nafni Hugh var Normanninn Hugh „Le Grand Veneur“ (veiðimaðurinn mikli). Sá var stór vexti og var því uppnefndur „Le Gros Veneur“ (feiti veiðimaðurinn). Hugh þessi var handgenginn Vilhjálmi bastarði Englandskonungi og að launum hlaut hann mikið land. Það var svo árið 1677, þegar Thomas Grosvenor kvæntist hinni tólf ára Mary Davies, erfingja að votlendi sem síðar varð að fínustu hverfum Lundúna, Mayfair og Belgravia, að ríkidæmi fjölskyldunnar var tryggt.“

Þannig setur hún í samhengi hið hróplega óréttlæti sem liggur í því að þjóðareign sé hægt að selja með þessum hætti.

Hægt er að lesa pistil Sifjar í heild sinni hér.