Sif Sigmars líkir ferðalögum nútímans við helvíti Dantes

Í nýjum pistli sínum fer Sif Sigmars yfir ástæður þess að fríin okkar og aðrir draumar rætast ekki eins og við sáum fyrir okkur.

Pistillinn sem ber nafnið „Banamein drauma“ birtist í Fréttablaðinu í morgun en Sif telur að sama hverjar áætlanir og draumar okkar hafi verið í fortíðinni sé nútíðin yfirleitt ekki í líkingu við þá draumsýn. Þá segir hún að „við dekrum við framtíðar sjálf okkur eins og börn“ sem verður að teljast nokkuð rétt því hver vill ekki sjálfum sér vel í framtíðinni ?

En Sif telur þó að stundum þegar við höfum hlakkað til einhvers í langan tíma hafi fortíðarsjálf okkar mögulega gert okkur grikk með því að ana okkur út í aðstæður sem svo reynast meira í líkingu við „víti“ eins og Sif orðar það og segir einnig að „Þótt ferðalög annarra líti á samfélagsmiðlum út eins og myndir í sölubæklingi ferðaskrifstofu er raunveruleikinn oft líkari víti Dantes og níu hringjum þess.

Hún skapar þá samlíkingu fyrir utanlandsferðaþorsta Íslendinga við hina níu hringi helvítis sem fyrst birtust í hinum Gleðileiknum Guðdómlega eftir Dante á 14. Öld. En þar gerðist Dante vissulega ferðamaður ásamt leiðsögumanninum Virgil og heimsótti hina 9 hringi vítis sem allir innihéldu mismunandi refsingar ætlaðar hinum syndugu.

Sif telur þá upp hina 9 hringi vítis og setur í samhengi við ferðalög nútímans.

  1. Limbó: Forgarður helvítis eru undirmannaðir flugvellir en þangað eru heiðingjar sendir til dvalar að eilífu – sem er einmitt biðtími eftir töskum í farangursafgreiðslu nú um stundir.
  2. Girnd: Í öðrum hring vítis, sem stundum er kallaður EasyJet, er stanslaust rok. Ókyrrð í lofti er þó lítið böl samanborið við félagsskapinn, saurlífisseggi á borð við Akkilles, Kleópötru og ókunnuga sætisfélagann sem skýtur olnboganum yfir sætisbríkina og teygar míní flöskur af víni uns tekur að drafa í honum að konan hans skilji hann ekki.
  3. Ofát: Í þriðja hringnum er þeim refsað sem kunna sér ekki hóf. Syndugum er þó vorkunn því að hlaðborð hótela er eini vettvangurinn þar sem endurheimta má hluta kostnaðarins við fríið sem maður hafði í raun aldrei efni á. Refsingin samkvæmt Dante er voldugur stormur með hagléli og mannaskít – eða eins og það kallast í ódýrari pakkaferðum til Tene: Matareitrun.
  4. Græðgi: Séra Davíð Þór Jónsson rataði í fréttirnar nýverið þegar hann sagði „sérstakan stað í helvíti fyrir fólk sem selur sál sína fyrir völd.“ Flestir vita við hvern hann átti. Færri vita að máltækið er fengið úr Hinum guðdómlega gleðileik eftir Dante. Allir vita að það er sérstakur staður í fataskápum fólks fyrir varning sem keyptur var í útlöndum dýrara verði en fyrir sálartetur en var aldrei notaður eftir heimkomu.
  5. Reiði: Í fimmta hring vítis busla hinir heiftúðugu í fúlu fljóti sem kallast Styx. Hver yrði ekki reiður svamlandi í sundlaug fullri af skríl og plástrunum af þeim vitandi að Nonni í næsta húsi er með „infinity pool“ í fríinu sínu?
  6. Villutrú: Áður en lagt var í hann var fríið trúin á ferðamyndir annarra á samfélagsmiðlum; lakkaðar tær í flæðarmáli, hrímað hvítvínsglas á borði, börnin að dunda sér í samstæðum sumarfötum. En veruleikinn er banamein drauma.
  7. Ofsi: Hver gengi ekki af trúnni við blæðandi fætur undan nýjum sandölum, fimm hæða kúluís í blóðkerfi og á bolum barnanna, þriggja stunda biðröð til að komast að því að Móna Lísa er ekki mikið stærri en frímerki og í vísitölufjölskyldu þarf alltaf einhver að pissa á tuttugu mínútna fresti?
  8. Fals: En þjáningar í áttunda hring vítis verða næstum þess virði er við vinnum bug á sjálfshatrinu eitt andartak með því að láta öðrum líða illa og deilum mynd á Facebook af hrímuðu hvítvínsglasi með boðskapnum: Sjáðu mig, ég er að gera eitthvað fáránlega skemmtilegt á meðan þú ert að gera upp á milli þess að tækla þvottafjallið eða skera þig á púls.
  9. Fláræði: Níundi hringur vítis er ísilögð veröld þar sem freðnar sálir sitja fastar til eilífðarnóns. Velkomin heim.