Sif Sigmarsdóttir, einn vinsælasti pistlahöfundur landsins, segir yfirlýsingu Bjarna Benediktssonar, fjármálaráðherra, um mál þeirra fjögurra fjölmiðlamanna sem hafa verið boðaðir til yfirheyrslu af lögreglunni á Akureyri til þess fallna að „eitra brunninn“ eins og hún orðar það í nýjasta pistli sínum í helgarblaði Fréttablaðsins.
Pistill Sifjar hefst á yfirferð um nokkur hneykslismál Boris Johnsson, forsætisráðherra Bretlands. Hún segir ekkert hneykslanna jafn nálægt því að fella Boris og þegar hann stóð í pontu í breska þinginu þann 31. janúar síðastliðinn og viðraði samsæriskenningu, „um að leiðtogi stjórnarandstöðunnar, Keir Starmer, bæri ábyrgð á að látinn skemmtikraftur og barnaníðingur hefði ekki verið sóttur til saka.“
Boris átti að standa fyrir svörum vegna samkvæma í ráðuneyti sínu sem brutu gegn sóttvarnarreglum þar í landi. Sif segir að í staðin fyrir að svara hafi Boris ákveðið að beina athyglinni annað og það á þessa fyrrnefndu samsæriskenningu.
Sif segir marga flokksfélaga forsætisráðherra hafa kallað eftir tafarlausri afsögn hans.
„Fórnarlömb barnaníðingsins sökuðu Boris um að hafa þjáningar þeirra í flimtingum. Samstarfsfólk uppnefndi hann „ódýra útgáfu af Trump“. Keir Starmer sagði Boris „eitra hinn lýðræðislega brunn“ og kvað það geta reynst hættulegt að „apa upp samsæriskenningar fasista í von um örfá pólitísk stig,“ segir Sif og heldur áfram.
„Hann reyndist sannspár. Viku síðar veittist hópur manna að Starmer með ofbeldi og sakaði hann um að verja barnaníðinga. Talsmaður Verkamannaflokksins sagði um Boris: Leggist maður með hundum fær maður flær,“ segir Sif.
Því næst víkur hún að yfirlýsingu Bjarna um mál þeirra fjögurra fjölmiðlamanna sem hafa verið kallaðir til yfirheyrslu. Hann hafði gagnrýnt fréttaflutning af málinu og sagði eðlilegra að fjölmiðlar beindu sjónum sínum að því hvað hinn grunaði kunni að hafa til saka.
„Samsæriskenning gengur um hið myrka skúmaskot internetsins Moggabloggið, þar sem ýjað er að því að blaðamenn hafi stundað þjófnað og sýnt manni banatilræði við upplýsingaöflun um Samherja,“ segir Sif í pistlinum.
Sif heldur áfram og segir aðeins eitt Trumpískara en að kasta rýrð á fjölmiðla með því að gefa í skyn að þeir flytji falsfréttir. „Að beina athyglinni frá kjarna málsins með því að viðra fjarstæðukenndar samsæriskenningar. Bjarni, líkt og Boris, leyfir sér að „eitra brunninn“. En Bjarna væri hollt að hafa hugfast að leggist maður með hundum fær maður flær.“