Sif rekin og biðst afsökunar

Sif Konráðsdóttir, sem var aðstoðarmaður Guðmundar Inga Guðbrandssonar, umhverfisráðherra í 64 daga, hefur verið látin taka pokann sinn vegna afglapa á lögmannsferli sínum fyrir rífum áratug.

Sif seg­ir í yfirlýsingu að upp­gjör við skjól­stæðinga sína hafi dreg­ist á lang­inn þegar hún hætti lög­manns­störf­um árið 2007 og flutti til út­landa af per­sónu­leg­um ástæðum: \"Í kjöl­farið hóf ég störf hjá alþjóðastofn­un og lagði tíma­bundið inn lög­manns­rétt­indi mín, svo sem mér bar að gera. All­mörg­um mál­um var ólokið þegar ég fór utan, þar á meðal upp­gjöri við þrjá skjól­stæðinga mína sem verið höfðu brotaþolar í tveim­ur kyn­ferðis­brota­mál­um. Upp­gjör við þá dróst úr hömlu af ástæðum sem ég ber ábyrgð á,“ seg­ir í yf­ir­lýs­ingu Sifjar.