Sif líkir kristjáni loftssyni við maó

Sif Sigmarsdóttir rithöfundur birtir pistil í Fréttablaðinu í dag þar sem hún líkir nýjasta útspili Hvals hf. við kínverskar skottulækningar á vegum Maós á sínum tíma.
 
Orðrétt segir Sif:
 
“Hvalveiðar Íslendinga eru komnar í efnahagslegt og hugmyndafræðilegt þrot. Fáir vilja leggja sér hvalkjöt til munns; enginn vill kaupa það - ekki einu sinni Japanir; flest lönd banna flutning á hvalasfurðum um lögsögu sína; óttast er að hvalveiðar skaði orðspor íslensks ferða-og útflutningsiðnaðar. Hver er þá tilgangurinn með veiðunum?
 
Járntöflur Hvals hf. virðast lítið annað en örvæntingarfullur fyrirsláttur, síðasta tilraun Kristjáns Loftssonar til að bægja frá því óhjákvæmilega: Endalokum hvalveiða á Íslandi.”
 
Sjá meðf.: