Sif Atladóttir, landsliðskona í knattspyrnu brotnaði saman í viðtali við RÚV þegar hún opnaði sig þar um andlát föður síns. Atli féll frá þann 2. september eftir hetjulega baráttu við krabbamein. Sif settist niður með RÚV í dag og ræddi um þann ótrúlega mann sem Atli hafði að geyma.
Sif sagði í samtali við RÚV að það hefði verið gaman að eiga Atla sem föður. Sif segir:
„Við vissum alltaf að pabbi væri þekktur en að sjá öll fallegu minningarorðin og að sjá hvað hann snerti fólk.. Þegar ég var krakki að fara með pabba í bæinn, sem átti að taka tíu mínútur, að það tók alltaf 2-3 tíma. Maður hékk á hendinni og sagði:
„Jæja, pabbi nú drífum við okkur!“
En það var alveg sama hver það var, hvort sem það hafi verið einhver sem hann þekkti eða einhver sem hafði skoðun, hann stoppaði alltaf og talaði við fólkið. Oftar en ekki spurði ég hann hver þetta var og hann vissi það ekki:
„Bara einhver sem þurfti að tala við mig.“
Ég upplifði það alltaf þannig að þegar fólk fór frá honum að þá var það í miklu betra skapi heldur en þegar það kom. Hann gaf svo rosalega mikið af sér.“
Þá sagði Sif að það hefði verið súrsætt að lesa öll minningarorðin á samskiptamiðlum.
„Ég veit líka hvað hann gekk í gegnum. Hann fer til Þýskalands og sækir sér þessa þjálfaragráðu. Svo kemur hann heim og þá varð maður pínu reiður. Helst af því að maður sá hann lenda í svo rosalegu mótlæti. Þá hugsar maður stundum:
„Hvar var fólkið þegar hann þurfti mest á því að halda?”
Þegar maður fer að rifja þetta upp getur maður orðið pínu reiður.“
Sif heldur áfram og segir að faðir hennar hafi oft komið að lokuðum dyrum.
„Svo sagði Egill bróðir að pabbi hefði hugsað með sér:
„Það er ekki það sem skiptir máli.”.
Fólk er að minnast hans af því að hann var svo dásamlegur. Svo næst, ef einhver bankar upp á og þú átt möguleikann á því að opna dyrnar, að þá kannski opnarðu dyrnar.” Sif heldur áfram:
„Pabbi hefði líka sagt þetta. Bara að ef við getum hjálpað hvoru öðru að þá er það mjög mikilvægt. Ég held að það hafi lýst honum ótrúlega vel. Ef að pabbi hefði átt möguleikann á að opna dyrnar fyrir þeim sem bankaði upp hjá honum að þá hefði hann alltaf gert það.“
Hér má horfa á viðtal RÚV við Sif.
Sif Atladóttir missti föður sinn, Atla Eðvaldsson sama dag og Ísland mætti Slóvakíu í síðasta mánuði. Við settumst niður með Sif í Lettlandi í dag þar sem Sif opnaði sig um föðurmissinn. Sýnt verður úr viðtalinu í íþróttafréttum kl. 19:40 í kvöld og á https://t.co/C3cj7fjGZ5. pic.twitter.com/4FJsPcpA3G
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) October 6, 2019