Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins og samfélagsrýnir, lést á heimili sínu í gær, 83 ára að aldri, eftir baráttu við afleiðingar heilaslags fyrr á árinu. Hann lét af störfum á Morgunblaðinu árið 2008 en hélt þó áfram að skrifa vikulega pistla. Hafa margir þeirra innihaldið mikilvæg skilaboð til þjóðarinnar og verið mikið ræddir. Fram kemur í frétt Morgunblaðsins um andlát Styrmis að það hafi verið eitt hinsta verk Styrmis í gær að senda pistil til blaðsins.
Í pistli Styrmis sem birtur er í Morgunblaðinu í dag hrósar hann Víkingi Heiðar Ólafssyni píanóleikara og segir hann í fremstu röð í heiminum. „Það segir ákveðna sögu um tónlistarkennsluna hér og það umhverfi sem tónlistarfólk starfar í að einstaklingur frá svo fámennu samfélagi skuli komast í hóp þeirra Rubinsteins, Horowitch og Argerich, svo nokkur nöfn séu nefnd,” sagði Styrmir.
Vill hann að knýjandi verkefni í menningarlífi Íslands verði að umtalsefni í aðdraganda kosninga. „Fyrir nokkrum árum tóku æskuvinir Atla Heimis Sveinssonar tónskálds og vinir hans úr tónlistarheiminum höndum saman um að láta skrá öll tónverk hans, hvort þau hefðu verið flutt og þá hvar og af hverjum,“ sagði Styrmir. Vill hann að skrá þurfi verk „allra íslenzkra tónskálda fyrr og síðar, þar á meðal þeirra Sigvalda Kaldalóns og Jóns Leifs, sem báðir voru í miklu uppáhaldi hjá Atla“. Sama á svo við um leiklist.
Vill Styrmir að þetta framtak þurfi að taka fyrir á nýju þingi. „Þessi grein er hugsuð sem hvatning til nýrra þingmanna um að sýna þessari merkilegu sögu ræktarsemi. Við eigum að halda þessari sögu til haga, hvort sem um er að ræða tónlist, leiklist eða aðrar listgreinar. Þetta er hluti af okkar sögu,“ sagði Styrmir.
Styrmir bætti svo við að hann og Atli Heimir hafi kynnst í átta ára bekk:
„Verðandi þingmenn og þá sérstaklega fjárlaganefndarmenn mega búast við því að sótt verði að þeim úr öllum áttum. Svo vill til að klíka okkar Atla átti og á fulltrúa í öllum flokkum.“