Von á sektum frá og með morgundeginum

Reykjavíkurborg minnir ökumenn á að í dag er síðasti dagurinn sem leyfilegt er að aka um göturnar á nagladekkjum.

Hlutfall negldra dekkja á bifreiðum í Reykjavík var mælt í fyrradag, miðvikudaginn 13. apríl,  og reyndist þá 31% ökutækja á negldum dekkjum. Nagladekk eru ekki leyfileg á götum borgarinnar frá 15. apríl til 1. nóvember 2016.

Það er því ljóst að mikill fjöldi ökumanna á verk fyrir höndum að skipta um dekk því annars taka menn séns á að fá sektir.

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að margir ökumenn hafa drifið í því að skipta yfir á heilsárs- eða sumardekk og verði því vonandi lokið fyrir Sumardaginn fyrsta. Nagladekk auka kostnað á viðhaldi gatna í Reykjavík og eldsneytiskostnað bifreiða, þau valda óþarfa hávaða og draga úr loftgæðum. Lögreglan hefur leyfi til að leggja sekt á nagladekk á sumrin.

 Árið 2015 var einnig talið í 16 viku ársins og var hlutfall þeirra ökutækja sem voru á negldum dekkjum 28,9% og fyrir tveimur árum 24,9%. Hlutfall negldra dekkja hefur því hækkað nokkuð.

Bifreiðar á nagladekkjum eyða malbiki margfalt hraðar en önnur dekk og eiga nokkurn hlut í svifryks- og hávaðamengun. Loftgæðamælingar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur sýna að svifryksmengun hefur þegar farið sex sinnum yfir heilsuverndarmörk á þessu ári en  sólarhringsmörkin eru 50 (µg/m3) rúmmetrar á sekúndu.