Nokkur börn í hópnum: það yngsta 6 ára - sjáðu myndirnar af svæðinu

Laust fyrir klukkan átta í morgun komu björgunarsveitir með síðustu ferðamennina í fjöldahjálparstöðina í Gullfoskaffi en björgunarsveitir af Suður- og Suðvesturlandi hafa unnið að því að koma 39 manna hópi vélsleðafólks til hjálpar frá því klukkan átta í gærkvöldi. Nokkur börn eru í hópi ferðamannanna. yngsta er sex ára gamalt.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu björgunarsveitar Suðurlands. Enginn úr hópnum er alvarlega slasaður en fólkið var orðið kalt, blautt og þrekað eftir atburði dagsins. og verið er að vinna í því að koma fólki á hótel sín.

Það er enn þó nokkur fjöldi björgunarmanna á leið niður af fjöllum og er veður og færð enn slæmt sem tefur för þeirra.

Vélsleðahópurinn hafði farið í skipulagða ferð á vegum ferðaþjónustufyrirtækis um klukkan eitt í gær og tóku um 300 manns þátt í björgunaraðgerðum á 57 tækjum við mjög erfiðar og krefjandi aðstæður.

Meðfylgjandi eru myndir frá björgunaraðgerðum við rætur Langjökuls en mjög slæmt veður er á svæðinu, lítið sem ekkert skyggni og skafrenningur.

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"