Siðmennt: staða kirkju aldrei veikari

Niðurstöður könnunar sem Siðmennt hefur látið vinna benda til þess að veraldlegar lífsskoðanir séu í mikilli sókn á Íslandi.

„Staða þjóðkirkjunnar hefur líklega aldrei verið veikari og sífellt færri Íslendingar eru hlynntir afskiptum hins opinbera af trú og lífsskoðunum,“ segir á vef Siðmenntar en hægt er hér að nálgast niðurstöðurnar í heild.

„Sú staðhæfing að íslenska þjóðin sé kristin er ekki í samræmi við afstöðu meirihluta Íslendinga, sem birtist í könnun Maskínu. Samkvæmt könnuninni segjast 46% Íslendinga vera trúuð, sem er lægsta gildi sem sést hefur í könnunum.“

„Tæp 30% segjast ekki trúuð og 23,7% segjast ekki geta sagt til um hvort þau séu trúuð eða ekki. Þó 46% Íslendinga segist trúaðir eru ekki nema 36% sem trúa helstu kenningum kirkjunnar um guð, eilíft líf og upprisuna. Yngsti aldurshópurinn sker sig úr en 80,5% telja enga vissu fyrir guði, eru trúlaus eða trúa alls ekki. Fjórðungur svarenda telur sig eiga mikla samleið með þjóðkirkjunni en á bilinu 46-47% telja sig eiga litla eða enga samleið með henni,“ segir á vef Siðmenntar.