Þau tíðindi urðu í útvarpsþættinum Harmageddon í vikunni að hlustandi hringdi inn, sagðist fyrrverandi sóknarprestur hjá þjóðkirkjunni en væri nú genginn af trúnni – eins og háttaði reyndar til um flesta kollega hans, prestana. Jesús, María mey og það allt væri bull. Maðurinn sagðist nú vera orðinn athafnastjóri hjá Siðmennt og væru það góð skipti samanborið við þjóðkirkjuna. Hann talaði með norðlenskum hreim og var erfitt að greina hvort um grín væri að ræða eða ekki.
Af þessu tilefni sendi Hringbraut Jóhanni Björnssyni, formanni Siðmenntar, fyrirspurn og vildi vita hvort Siðmennt væri með fyrrverandi prest þjóðkirkjunnar á sínum snærum sem væri farinn að sjá um veraldlegar athafnir, greftrun og nokkrar borgaralegar giftingar eins og maðurinn sem hringdi inn hélt fram og hvort sá mnaður hefði hringt inn á Harmageddon.
Af svörum Siðmenntar má ráða að maðurinn hafi farið frjálslega með.
„Ég hafði eitthvað aðeins heyrt af þessu, en hlustaði á spjallið í fyrsta sinn núna eftir að þú sendir mér fyrirspurnina. Nafn þessa manns kemur hvergi fram og ég þekki ekki röddina og veit ekki til þess að það sé nokkur fyrrverandi prestur starfandi hjá okkur,“ segir Jóhann.
Jóhann segist efast um að maðurinn sé eitthvað tengdur Siðmennt og því síður athafnaþjónustu Siðmenntar þótt hann segist í útvarpsviðtalinu hafa stýrt borgaralegum giftingum. „Við notum orðatiltækið veraldlegar giftingar þar sem borgaralegar giftingar eru frekar það sem sýslumenn gera. Borgaralegar giftingar er því orðalag sem athafnastjórar okkar nota ekki.“
Er þá e.t.v. um grín að ræða?
„Þetta á greinilega að vera eitthvað grín, en Siðmennt er ekki grínklúbbur og svona nokkuð kemur því ekki frá stjórn félagsins og vonandi ekki félagsmönnum heldur,“ segir Jóhann og vísar ábyrgð frá samtökunum í þeim efnum ef ske kynni að um einhvern húmor væri að ræða.
Hlusta má á viðtalið hér sem hefst þannig: „Er ég í beinni útsendingu?“ Þar ræðir Máni í Hamrageddon við „prestinn“ sem kallar „vitleysuna“ um Adam og Evu arf liðins tíma. Þar kemur fram að það sé erfitt að kyngja því að biblían sé tóm þvæla eftir að prestar hafi fjárfest í guðfræðináminu en vitaskuld átti flestir prestar sig á vitleysunni. Hinn meinti fyrrverandi sóknarprestur segir að honum líði nú 100 sinnum betur þegar hann sofnar á kvöldin miðað við þann tíma sem hann starfaði hjá kirkjunni og laug í litlu börnin, t.d. um jólaguðspjallið.