"Dapurleg staða íslensks launafólks er óþolandi vegna þess að landið er feikilega ríkt og lífskjör almennings ættu að vera með því besta sem þekkist í heiminum,“ segir Jóhannes Björn Lúðvíksson, sem kunnur er af bók sinni Falið vald, í nýjum pistli sem hann ritar á vefinn stundin.is. Þar bendir hann á að stór hluti Íslendinga vinni fyrir launum sem standi ekki undir mannsæmandi lífskjörum. "Meira að segja fólk sem hefur stundað nám á háskólastigi árum saman getur ekki skrimt af laununum ef það er eina fyrirvinna heimilisins og þarf að fæða og klæða eitt eða fleiri börn,“ segir Jóhannes í pistlinum.
Hann telur þessa stöðu skammarlega því nær hvergi í veröldinni séu til aðrar eins auðlindir og hér á landi. „Hvergi í heiminum, nema þar sem olían vellur upp úr jörðinni, á svo fámennur og vel upplýstur hópur slíka gnótt verðmæta. Hitt er líka staðreynd að hvergi á norðurhveli jarðar hefur spilling og óstjórn staðið þegnunum eins fyrir þrifum og á Íslandi,“ segir Jóhannes og telur að ef Íslendingar nýttu náttúruauðlindir sínar með sómasamlegum hætti ættu þeir að geta haft það mun betur en þeir gera nú. „Kvótakerfið er svo siðlaust að það getur aldrei orðið annað en séríslenskt undur,“ segir Jóhannes og bætir við að auka mætti tekjur ríkisins af sjávarútvegsauðlindinni um 10 til 15 milljarða á ári.