Ólafur Arnarson hagfræðingur gefur lítið fyrir þann málflutning að allt snúist um hvort lög hafi verið brotin eða ekki þegar kemur að ábyrgð þeirra Íslendinga sem hafi nýtt sér aflandsfélög.
\"Þeir sem berjast fyrir því að íslenskur almenningur sé njörvaður niður í vaxtaokri og fákeppni íslensku krónunnar en fara sjálfir með sína peninga og/eða sinna nánustu út úr krónuhagkerfinu eru klárlega mjög sekir um tvískinnung og siðleysi á slíkum skala að þeir eru ekki boðlegir ráðamenn þessarar þjóðar. Þetta gildir jafnvel þó að þeir hafi engin hegningar- gjaldeyris- eða skattalög brotið,\" segir Ólafur Arnarson.
Hann tengir með ummælum sínum við grein á Eyjunni sem unnin er upp úr aðsendri grein Vilhjálms Bjarnasonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Vilhjálmur segir að í umræðum tengdum Panamaskjölunum hafi ekki verið gerður munur á pólitískum sakargiftum eða sakargiftum vegna brota á hegningarlögum, skattalögum eða lögum um gjaldeyrismál. Pólitískar sakargiftir séu reistar á siðferðislegum grunni þar sem forsendur séu alls ekki ljósar.
Fyrir þessi rök gefur Ólafur Arnarson hagfræðingur ekki neitt.