Jón Ólafsson heimspekingur sem stýrt hefur nefnd um bætt siðferði í stjórnsýslu sagði í viðtali við Kastljós í kvöld að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hefði ekki gert grein fyrir hagsmunum sem æskilegt væri að hann hefði gert grein fyrir. Spurningin væri ekki hvort lög hafi verið brotin heldur líti mál forsætisráðherra ekki vel út.
Málið sem hófst með facebook-færslu eiginkonu forsætisráðherra í gærkvöld var rætt í Kastljósi. Komið hefur á daginn að eigikona Sigmundar Davíðs á milljarða eignir í félagi í skattaskjóli á Tortóla. Félagið hefur gert kröfur sem nema hundruðum milljóna í þrotabú föllnu bankanna hér á landi. Sérhagsmunir virðast hafa verið fyrir hendi hjá forsætisráðherra að semja um þau mál fyrir hönd íslenska ríkisins. Hefur hann sjálfur verið kallaður hrægammur í dag og er vitnað til þeirra ummæla sem hann lét falla í kosningabaráttu 2013.
Jón Ólafsson sem er prófessor við Háskólann á Bifröst sagði að það þyrfti að vera hafið yfir vafa að fólk sem gegndi æðstu trúnaðarstöðum fyrir almenning hefði hreint borð. Staða forsætisráðherra væri nú \"mjög ótrúverðug\".
Framsóknarmenn hjóla í VG
Við allt annan tón slær hjá samflokksmönnum Sigmundar Davíðs. Karl Garðarson þingmaður Framsóknarflokksins skrifar færslu á facebook í kvöld og uppsker velþóknun samflokksmanna líkt og Vigdísar Hauksdóttur:
\"Björn Valur Gíslason, varaformaður Vinstri grænna, hefur prívat og persónulega tekið að sér að losa VG við þau 2,9% sem vantar upp á að flokkurinn hverfi endanlega af þingi, miðað við nýja könnun MMR. Það er auðvitað metnaðarfullt og göfugt markmið og ber að þakka Birni fyrir það.\"
Með því vísar Karl til þess að Björn Valur varaformaður VG gerði á þingi í dag einn þingmanna kröfu til þess að forsætisráðherra gerði grein fyrir sínu máli.
Í kvöldfréttum sjónvarps benti fréttamaður á þá þversögn að á sama tíma og eiginkona forsætisráðherra segði liggja skýrt fyrir að hún sæi um viðskipti en eiginmaðurinn um pólitík bendir hún fréttamönnum á aðstoðarmann forsætisráðherra, Jóhannes Þór til að skýra málið.