Siðfræðingur: ráðherrann breytti rangt

Vilhjálmur Árnason, stjórnarformaður Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands segir að forsætisráðherra hafi farið rangt að með því að upplýsa ekki um aflandseignir.
 
Þetta kom fram í samtali við hann á RÚV um helgina, en þar talaði hann afdráttarlaust; það hefði verið miklu eðlilegra í lýðræðisríki ef ráðherrann hefði gert grein fyrir þessum tengslum sínum, bæði gagnvart þjóðinni \"og auðvitað gagnvart sínu samstarfsfólki í stjórnmálum,\" eins og Vilhjálmur sagði við miðilinn.
 

 

Vilhjálmur segir að viðbrögðin hafi einnig verið röng, bæði hjá forsætisráðherra og þeim sem hafi talað hans máli. Siðferðilega sé eðlilegt að átta sig á því að þjóðarleiðtogi ætti að gera grein fyrir tengslum af þessu tagi, sem geti haft áhrif á ákvarðanir hans: \"Þar með er alls ekki verið að ásaka hann um að hafa tekið ákvarðanir sem voru honum persónulega í hag. Þetta snýst ekki um það, heldur að hann eigi ekki að vera í þeirri stöðu að það sé hægt að draga ákvarðanir hans í efa.“

 

 

 

Samkvæmt reglum um hagsmunaskráningu þingmanna þurfti forsætisráðherra ekki að gefa eignir eiginkonu sinnar upp á vef þingsins. Vilhjálmur segir að það sé ekki endilega nægjanlegt að horfa til skráðra reglna eða laga í svona tilviki: \"Þetta snýst um trúverðugleika,“ segir hann.