Siðferðisleg brotalöm sigmundar

Alvarlegi siðferðilegi veikleikinn í máli forsætisráðherrahjónanna núna liggur fyrst og í fremst í pólitík forsætisráðherrans.


Þetta segir Þorsteinn Pálsson í nýjum pistli á Hringbraut. Þessi fyrrum formaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra þjóðarinnar telur að engin lög hafi verið brotin í málinu sem komið er upp nú, en \"siðferðilega brotalömin felst aftur á móti í þeirri pólitík forsætisráðherra að halda því fram að á sama tíma sé hagsmunum launafólks best borgið í krónuhagkerfinu. Það er viðhald þeirrar efnahagslegu mismununar sem byggir á feysknum siðferðilegum stoðum,\" skrifar Þorsteinn.
\"Nær væri að Alþingi kallaði eftir því að forsætisráðherra skýrði það tvöfalda siðferði sem felst í þeirri pólitík,\" skrifar Þorsteinn Pálsson en pistil hans má lesa í heild hér.

Þorsteinn ræðir einnig uppákomuna á Alþingi í gær: \"Vera má að það sé álitaefni hvort forsætisráðherra hefði átt að ganga lengra en reglur segja til um varðandi hagsmunaskráningu að því er varðar eignir maka. Auðvitað má ræða slíka spurningu en hún gefur þó tæpast tilefni til þeirra upphrópana sem urðu um málið á Alþingi.\"