Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins, hefur verið tilnefnd til setu í stjórn Lífeyrissjóðs verslunarmanna. Hún mun taka sæti þar í mars. Morgunblaðið greinir frá.
Fram kemur á mbl.is að Helgi Magnússon hafi ákveðið fyrir nokkru að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn lífeyrissjóðsins.
Guðrún er í hópi æðstu stjórnenda hjá Kjörís og gegnir fjölmörgum trúnaðarstöðum.