Karl Ágúst Úlfsson leikstjóri fór eins og í fyrri þættinum á kostum í inngangsorðum sínum í Helginni á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í gærkvöldi, en þar fjallaði hann um það sem hæst hefur borið í vikunni sem er að líða; óhefðbundnar lækningar, lögregluafbrot og svimandi launahækkanir innan OR. Hann kvaðst ætla að það væri endanlega komið í ljós að siðblinda í viðskiptum væri ólæknandi, fréttirnar frá því fyrr í vikunni um afar óhefðbundnar lækningavörur bæru þess vitni. Þá væri athyglisvert úr fréttum vikunnar að það væri nú aðallega lögreglan sjálf sem bryti orðið lögin sem út af fyrir sig væri mjög athyglisvert – og að lokum þetta, úr safni Karls Ágústs: Vissulega ætti Bjarni Bjarnason forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur skilið að fá tvöfalt hærri laun en áður, fara úr þetta 1200 þúsundum á mánuði upp á hálfa þriðju; hann væri jú svo hæfur, sem hlyti raunar að leiða hugann að öðru starfsfólki Orkuveitunnar sem miðað við sömu rök og þeirra launakjör væri þá allt saman vanhæft. Sjá má klippur úr Helginni hér neðar á forsíðu hringbrautar.is
Siðblinda er ólæknandi
Fleiri fréttir
Nýjast