Síðasti dagur nagladekkjanna

Síðasti dagur nagladekkkjanna er upp runninn á Íslandi, enda þótt éljagangur sé ennþá í kortunum, altént þegar líður á næstu helgi. Alls óvíst er hvort lögregla taki hart á nagladekkjabrotum á morgun og næstu daga vegna aðstæðna sem hafa verið ökumönnum sem öðrum landsmönnum einstaklega mótdrægar í allan vetur sem fer líklega í sögubækurnar hvað ófærð varðar.


Samkvæmt umferðarlögum er sektin 5 þúsund krónur á hvert dekk ef menn eru gripnir með allt járnað undir rennireiðinni - og munar vísast margan manninn um 20 þúsund krónur. Lögregla hefur þó iðulega tekið tillit til aðstæðna svo sem að framan greinir.


Mjög hefur annars dregið úr nagladekkjanotkun á Íslandi á undanförnum árum, einkum í þéttbýlinu á suðvestanverðu landinu. Og fyrir þá sem eru einmitt að hugsa um það hvort þeir eigi að fá sér heldur heilsársdekk sem duga fram á næsta vetur, fremur en að kaupa sumardekk fyrir örfáa mánuði, er upplagt að fara inn á heimasíðu ASÍ og skoða verðmun á heilsársdekkjum, en þar kemur í ljós að hann getur verið vel yfir 100%.