Í menningarþættinum Lífsins list á hringbraut í kvöld skellir Sirrý sér í Bíó Paradís en þetta einstaka kvikmyndahús fagnar fimm ára afmæli um þessar mundir með sýningu á heimildarmynd um Jóhönnu Sigurðardóttur, fyrrverandi forsætisráðherra.
Sirrý og Steingrímur Þórðarson myndatökumaður heimsækja sumsé Heimili kvikmyndanna á Hverfigötunnni í Reykjavík og ræða við Hrönn Sveinsdóttur framkvæmdastjóra og Ásu Baldursdóttur um áhugaverðar kvikmyndir sem verða í Bíó Paradís á næstunni. Má þar nefna kvikmyndina ,,Jóhanna síðasta orustan\" sem fjallar um síðustu mánuði Jóhönnu Sigurðardóttur í embætti forsætisráðherra. Björn B. Björnsson gerði myndina og búist er við að hún muni vekja mikla athygli og valda pólitískum usla.
Í seinni hluta þáttarins er föndrað af miklum móð. Áhugi á bútasaumi er gríðarlega mikill meðal íslenskra kvenna. Í þættinum fer Sirrý í Virku og ræðir við Guðfinnu Helgadóttur sem rekið hefur vefnaðarvöruverslunina af slíkum myndarskap að eftir er tekið víða um heim: \"Konur koma alla leið frá Ástralíu, Bandaríkjunum, Frakklandi og Þýskalandi til að kaupa sér það sem þarf í bútasaum, slíkt er úrvalið hjá okkur\" segir Guðfinna í þættinum.
Hún hefur staðið fyrir helgarnámskeiðum bútasaumskvenna á Hótel Örk í 18 ár og er slíkt námskeið einmitt núna um helgina í Hveragerði. Þar koma konur saman og læra að sauma bútasaumsteppi, deila reynslu sinni og hugmyndum og skemmta sér í leiðinni.
Lífsins list verður á Hringbraut í kvöld kl. 21 og svo alltaf á hringbraut.is