Síðasta kvöldmáltíðin boðin upp

Matseðill síðasta kvöldverðarins sem framreiddur var farþegum á fyrsta farrými óheillaskipsins Titanic var sleginn á tæpa 119 þúsund dollara, eða 15,6 milljónir íslenskra króna á uppboði í Dallas í gær.
 

Þetta kemur fram á fréttasíðu RÚV í dag, en þar segir að munir úr Titanic gangi kaupum og sölum milli safnara fyrir himinháar fjárhæðir og eru matseðlar með eftirsóttustu gripum.

Í fréttinni segir að þetta muni vera eina eintakið af kvöldverðarseðlinum kvöldið örlagaríka 14. apríl 1912 sem hafi varðveist, en fyrir þremur árum hafi eintak af hádegisverðarseðlinum sama dag verið selt á uppboði fyrir nokkuð lægri upphæð.

Á boðstólum þetta kvöld voru meðal annars ostrur, nautalundir, steiktir andarungar og fleira ljúfmeti, og ferskjur í líkjörssósu í eftirrétt.