Siðanefnd handónýtt fyrirbæri?

Nú liggur fyrir fyrsta nið­ur­staða siða­nefndar Alþingis eftir rúm­lega tveggja ára til­veru. Hún hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli þing­­­flokks­­­for­­­manns Pírata, Þór­hildar Sunnu Ævar­s­dótt­­­ur, sem hún lét falla þann 25. febr­­­úar 2018 um akst­­ur­s­greiðslur til þing­­manns Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins, Ásmundar Frið­­riks­­son­­ar, hafi ekki verið í sam­ræmi við siða­­­reglur fyrir alþing­is­­­menn. Um þetta er fjallað í Kjarnanum.

Við­brögðin í sam­fé­lag­inu hafa ekki látið á sér standa og hafa margir lýst yfir furðu sinni á þess­ari fyrstu nið­ur­stöðu í ljósi þess að þing­mað­ur­inn sem um ræðir var að gagn­rýna hátt­semi sem þótti mjög vafasöm og vegna þess að for­sætis­nefnd tók ekki afstöðu til sann­leiks­gildis ummæl­anna sjálfra.

23,4 millj­­ónir í end­­ur­greiðslur frá 2013 til 2018

Mikið var fjallað um akstur Ásmundar í byrjun árs 2018 en þann 9. febr­­­úar sama ár var upp­­­lýst um að hann væri sá þing­­­­maður sem fékk 4,6 millj­­­­ónir króna end­­­­ur­greiddar vegna akst­­­­­ur­s­­­­­kostn­aðar árið 2017. Það þýðir að hann fékk um 385 þús­und krónur á mán­uði í end­­­­­ur­greiðslu úr rík­­­­­is­­­­­sjóði vegna keyrslu sinn­­­­ar. Alls keyrði Ásmundur 47.644 kíló­­­­metra árið 2017 og fékk end­­­­ur­greitt frá rík­­­­inu vegna kostn­aðar fyrir þann akst­­­­ur.

Í lok nóv­­­em­ber síð­­­ast­lið­ins end­­­ur­greiddi Ásmundur skrif­­­­stofu Alþingis 178 þús­und krónur vegna ferða sem honum hafði verið end­­­­ur­greiddar á árinu 2017. Sam­­kvæmt upp­­lýs­ingum um akst­­ur­s­­kostnað þing­­manna hefur Ásmundur aftur á móti fengið 23,4 millj­­ónir króna end­­­ur­greiddar vegna akst­­­ur­s­­­kostnað á fimm ára tíma­bili, frá árinu 2013 til árs­ins 2018.

Mest keyrði Ásmundur árið 2014 en þá fékk hann tæpar 5,4 millj­­­ónir end­­­ur­greiddar vegna akst­­­ur­s­­­kostn­aðar á eigin bif­­­reið. Árið 2015 fór hann einnig yfir 5 millj­­­óna króna markið en þá fékk hann rétt rúm­­­lega 5 millj­­­ónir end­­­ur­greidd­­­ar. Árið 2016 fékk hann tæpar 4,9 millj­­­ónir fyrir akst­­­ur­s­­­kostnað á eigin bif­­­reið. Lægstu greiðsl­­­urnar vegna ferða­­­kostn­aðar á eigin bif­­­reið fékk hann árið 2013 fyrir tíma­bilið 2013 til 2017 en þá fékk hann tæpar 3,2 millj­­­ónir end­­­ur­greidd­­­ar.

Á síð­­asta ári lækk­uðu end­­­ur­greiðslur Ásmundar en þá voru þær rúmar 680 þús­und krónur fyrir ferðir á eigin bif­­­reið og tæpar 1,2 millj­­ónir fyrir ferðir með bíla­­­leig­u­bíl, eða sam­tals 1.850.000 krón­­ur.

Þetta er aðeins brot úr grein á Kjarnanum þar sem ítarlega er fjallað um Siðanefnd, en greinina er að finna hér.