„verið að refsa mér fyrir að vera komin með krabbamein“

„Það er í rauninni verið að refsa mér fyrir að vera komin með krabbamein,“ segir ónefnd kona í samtali við Morgunblaðið í dag. Hún greindist nýverið með krabbamein í öðru brjósti sínu og þegar það uppgötvaðist kom einnig í ljós að hún er með genið BRCA2, sem eykur líkur á krabbameini.

Konum sem bera BRCA2 genið er því ráðlagt að láta fjarlægja bæði brjóst sín í forvarnarskyni. Slíkar aðgerðir eru greiddar að fullu af Sjúkratryggingum Íslands, en aðeins ef þær eru gerðar á konum sem ekki hafa greinst með krabbamein. Greiðsluþátttaka SÍ í tilfelli viðmælanda Morgunblaðsins nær því einungis til heilbrigða brjóstsins.

„Þetta er skrýtnasta birtingarmynd greiðsluþátttökukerfisins sem ég hef heyrt af,“ segir konan, sem kaus að fara í aðgerð á báðum brjóstum samtímis, enda hafi læknar sagt henni að það að skilja heilbrigða brjóstið eftir væri eins og að skilja tifandi tímasprengju eftir í líkamanum.

Aðgerðir sem þessar eru til að mynda gerðar á Brjóstaklíníkinni í einkareknu heilbrigðisþjónustunni Klíníkinni. Konan leitaði þar til Kristjáns Skúla Ásgeirssonar, sem hefur sérhæft sig í brjóstnámi og brjóstuppbyggingu. Kristján Skúli starfar einnig á brjóstamiðstöðinni í Nottingham á Englandi, The Nottingham Breast Institute, og var tekin ákvörðun um að gera aðgerðina á báðum brjóstum samtímis þar.

Búin að leggja út rúmar fjórar milljónir

Þó að aðgerðin, sem var framkvæmd í gær, hafi farið fram í Englandi greiða SÍ fyrir aðgerðina á heilbrigða brjóstinu að fullu, líkt og ef hún hefði verið framkvæmd hérlendis. Konan ber þó allan annan kostnað og þarf fyrst að greiða fyrir aðgerðina úr eigin vasa og sækja svo um endurgreiðslu frá SÍ vegna heilbrigða brjóstsins.

Kostnaðurinn sem konan þarf sjálf að inna af hendi er eins og áður segir fullur kostnaður fyrir aðgerð á krabbameinssjúka brjóstinu, ferðakostnaður og kostnaður við aðstoðarmann, en farið er fram á að hún fái fylgd á heimferðinni svo skömmu eftir þetta viðamikla aðgerð.

„Ég er búin að leggja út 26.175 pund,“ segir hún, en það eru tæpar 4,1 milljónir króna á gengi dagsins í dag. „Það er fyrir utan flugferðir og kostnað við aðstoðarmann, sem ég þarf líklega að greiða sjálf. Ég er heppin að hafa getað greitt þessa upphæð, ég veit vel að það eru ekki allir í mínum sporum sem geta það og þurfa þá að taka lán með tilheyrandi kostnaði til að leggja út fyrir aðgerðinni og fá svo síðar endurgreitt frá SÍ. Einhverjir þurfa líklega að útiloka að fara þessa leið og mér finnst þetta ekki vera sanngjarnt.“

Hún segist gjarna viljað hafa farið í aðgerðina hérlendis til að sleppa við ferðakostnað og kostnað við aðstoðarmann, enda kosti aðgerðin það sama fyrir ríkið hvar sem hún er gerð í heiminum. „Það eina sem er öðruvísi er að ég þarf að leggja talsvert á mig til að fara erlendis í aðgerðina. Ég hefði svo gjarnan vilja hafa losnað við það og fara í aðgerðina í Klíníkinni þar sem ég hefði getað fengið að njóta stuðnings vina og ættingja.“