Starfsgreinasamband Íslands hefur slitið kjaraviðræðum sínum við Samtök atvinnulífsins. Björn Snæbjörnsson, formaður SGS, sagði ekkert nýtt tilboð hafa borist frá SA og því hafi þessi ákvörðun verið tekin. Mbl.is greinir frá.
Fundi samningsaðila hjá ríkissáttasemjara var slitið eftir rúmlega hálftíma og tilkynnti Björn fjölmiðlum ákvörðunina fyrir utan fundarherbergið.
„Þetta þýðir að við förum í að kalla saman okkar aðgerðahóp og þar munum við taka ákvörðun um það hvernig við munum í framhaldinu skipuleggja okkur til þess að setja meiri þrýsting á að ná kjarasamningum,“ segir Björn í samtali við Mbl.is.
Í tilkynningu frá SGS segir að ákveðið hafi verið að slíta kjaraviðræðum við SA eftir árangurslausan fund hjá ríkissáttasemjara í dag. Síðastliðin föstudag hafi viðræðunefnd sambandsins samþykkt einróma að ef ekki kæmu fram nýjar hugmyndir eða viðbrögð frá SA um helgina hefði viðræðunefnd sambandsins fulla heimild til þess að slíta kjaraviðræðum. Þar sem engar nýjar hugmyndir eða tillögur komu fram frá SA hafi viðræðunefnd SGS slitið kjaraviðræðum og mun í kjölfarið sækja heimild til aðgerða frá félagsmönnum.
Viðbúið er að allt að tuttugu þúsund félagsmenn sambandsins fari í verkföll í apríl eða maí.