Sgs bjartsýnt og frestar verkfalli

Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands hefur gengið frá samkomulagi við Samtök atvinnulífsins um að fresta fyrirhuguðum verkföllum um sex daga, að því er fram kemur í tilkynningu frá nefndinni.


Þar segir að ljóst að viðræður séu hafnar af fullum þunga og er það mat samninganefndarinnar að gefinn skuli tími til að reyna til þrautar um að samningar náist. Kröfugerð Starfsgreinasambandsins sé þó sem fyrr grundvöllur áframhaldandi viðræðna. Frestun verkfalla verður sem hér segir: Verkfalli 28. og 29. maí er frestað til 3. og 4. júní. Ótímabundnu verkfalli 6. júní er frestað til 12. júní.


Ljóst er að samningaviðræður SGS við SA hafa tekið kipp eftir að bjartsýni um samning milli VR, LÍV, Flóans og StétVest við SA jókst til muna fyrr í vikunni, en þar er stefnt á undirritun samnings á morgun.