Þremur árum eftir að ísgöngin voru opnuð í Langjökli eru þau orðin meðal stærstu fyrirtækja Borgarfjarðar, með um fimmtíu starfsmenn, og gestafjöldinn í ár stefnir í sextíu þúsund manns. Og starfsemin gengur allt árið. Þetta kom fram þættinum „Um land allt“ og í fréttum Stöðvar 2.
Það þótti mörgum djörf ákvörðun að grafa ísgöng inn í Langjökul og bjóða ferðamönnum að skoða jökul að innanverðu. Í fyrstu vonuðust menn til að fá kannski 20-30 þúsund gesti yfir árið. Í ár stefnir fjöldinn í 60 þúsund gesti en gert er út frá Húsafelli.
„Við opnuðum 1. júní 2015, eftir fjórtán mánaða vinnu við að gera göngin klár. Og búið að ganga rosalega vel síðustu þrjú árin, þetta er búið að vera bara hröð uppbygging,“ segir Kjartan Þór Þorbjörnsson, viðhalds- og þróunarstjóri Into the Glacier
Nánar á
http://www.visir.is/g/2018181029733