Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Angjelin Mark Sterkaj í sextán ára fangelsi fyrir morðið á Armando Beqirai í Rauðagerði í febrúar síðastliðnum. Angjelin hafði játað verknaðinn. Samkvæmt Fréttablaðinu var Claudia Sofia Coelho Carvahlo, sambýliskona Angjelin, Murat Selivrda og Sheptim Qerimi öll sýknuð.
Ákæran byggði á því að morðið hafi verið skipulagt og framið með samverknaði alla fjögurra. Claudia hafi fengið fyrirmæli um að fylgjast með bílum Armandos sem lagt hafði verið við Rauðarárstíg. Murat hafi haft það hlutverk að sýna henni bílana. Samkvæmt ákæru hafði Claudia það hlutverk að fylgjast með þeim og gera Shpetim viðvart þegar hreyfing yrði á annarri hvorri þeirra. Þau neituðu öll sök.