Sexfalt fleiri ferðamenn á spítölum

Frá árinu 2010 hefur fjöldi reikninga sem Sjúkratryuggingar Íslands senda út til annarra EES-ríkja vegna heilbrigðisþjónustu hér á landi við ríkisborgara þeirra rúmlega sexfaldast.

Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag þar sem segir að hver koma á bráðadeild kosti ferðamann 44,100 krónur.

Þróunin í þessum efnum er augljós; árið 2010 voru sendir út 594 reikningar vegna þess, 834 árið eftir og 2,246 árið 2012. Reikningarnir voru orðnir 3,644 í fyrra.

Greiðslukerfi Landspítalans er með þeim hætti að allir þeir sem eru ekki sjúkratryggðir á Íslandi, erlendir ferðamenn og þeir Íslendingar sem eru með lögheimili utan landsteina, greiða sj´´ukraþjónustuna fullu verði. Ef ferðamaður utan EES er tryggður getur hann rukkað tryggingarfélag sitt um andvirði þjónustunnar, en það ferðafólk sem kemur frá evrópska efnahagssvæðinu getur framvísað ES-kortum og greiðir þá samkvæmt íslenskum gjaldskrám en Sjúkratryggingar Íslands rukka svo viðeigandi stofnun í heimalandi þess.

Það getur verið dýrt að greiða heilbrigðisþjónustu á Íslandi dýru verði. Sem dæmi má nefna er að fæðing kostar 338,440 krónur.