Sex konur eru æðstu stjórnendur í 50 stærstu fyrirtækjum landsins. Þetta kom fram í könnun Kjarnans í liðnum mánuði. Stuðst var við upplýsingar frá Keldunni um stærstu fyrirtæki landsins og stjórnendur þeirra.
Einnig kom í ljós að konur eru 12 prósent æðstu stjórnenda hjá stærstu fyrirtækjum landsins.
Meðal tíu stærstu fyrirtækja landsins eru tvær konur í æðstu stöðum, ef Lilja Björk Einarsdóttir, verðandi bankastjóri Landsbankans, er talin með. Hin konan er Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka.
Rannveig Rist, framkvæmdastjóri Rio Tinto Alcan, og Brynja Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Norvíkur, eru einu tvær konurnar í forsvari hjá fyrirtækjunum í 11. til 20. sæti, segir í frétt Kjarnans.
Hlutfall kvenna í stjórnum var 25,9 prósent í lok árs 2015, þegar öll fyrirtæki sem greiða laun og voru skráð í hlutafélagaskrá voru skoðuð samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Kynjakvóti um hlutfall karla og kvenna í stjórnum var lögfestur hér á landi árið 2013. Þau kveða á um lágmark 40 prósent hvors kyns í stjórnum fyrirtækja með fleiri en 50 starfsmenn á ársgrundvelli. Markmiðum laganna hefur því ekki verið náð miðað við þær tölur sem liggja fyrir nú.