Þrjár jólastúlkur og tveir jólastrákar komu í heiminn á aðfangadag á fæðingardeild Landspítalans í ár. Þá kom lítil jólastúlka í heiminn á fæðingardeildinni á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi.
Jólabörnin eru því sex að því er vitað er og kemur þetta fram á visir.is
Rólegt hefur verið á fæðingardeildum á Akureyri, Neskaupstað og Ísafirði undanfarinn sólarhring en von gæti verið á börnum á öllum stöðum þegar líða tekur á daginn að því er fram kemur í frétt vísis.