Í viðræðum um bætur milli þeirra fimm manna sem voru sýknaðir í Guðmundar- og Geirfinnsmálum í Hæstarétti síðastliðið haust og ríkislögmanns eru alls 600 milljónir króna til skiptanna. Upphæðin var upphaflega 400 milljónir króna en hefur verið hækkuð til að liðka fyrir viðræðum.
Fréttablaðið greinir frá því að 600 milljónunum verði skipt milli hinna sýknuðu eftir lengd gæsluvarðhalds og afplánunar. Tveir hinna sýknuðu eru látnir, Sævar Marinó Ciesielski og Tryggvi Rúnar Leifsson, og í þeirra tilfellum rynnu bæturnar til erfingja þeirra.
Fimmmenningarnir voru frelsissviptir í samtals 9.942 daga og næmu því bætur fyrir hvern dag um 60 þúsund krónum. Athygli vekur að þær bætur sem fjórmenningum sem sátu í gæsluvarðhaldi í nokkra mánuði vegna Geirfinnsmálsins voru dæmdar á 9. áratugunum voru umtalsvert hærri, námu nokkrum hundruðum þúsunda hvern dag.
Í umfjöllun Fréttablaðsins segir að lagt sé upp með að náist sættir myndi málinu ljúka og hinir sýknuðu afsala sér rétti til þess að sækja frekari bætur til dómstóla.