Bein útsending, bæði í sjónvarpi og útvarpi Hringbrautar, verður hefst klukkan tíu nú á sunnudagsmorgni.
Brennandi umræða er framundan, ekki síst vegna helstu deilumála samfélagsins, sem hafa sjaldan verið harðari og djúpstæðari en einmitt nú.
Gestir Sigurjóns M. Egilssonar verða Ólafur Haukur Símonarson rithöfundur, Guðlaug Kristjánsdóttir forseti bæjarstjórnar í Hafnarfirði, Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir stjórnsýslufræðingur, alþingismennirnir Óttar Proppé og Unnur Brá Konráðsdóttir og forsetaframbjóðandinn Guðni Th. Jóhannesson.
Einsog sjá má af gestalistanum má búast við bæði fjörugri og upplýsandi umræðu á Hringbraut milli tíu og tólf í dag, sunnudag.
Hægt verður að sjá þáttinn endursýndan á stöðinni síðar í dag sem og nota tímaflakk.